Hvalasafnið á Húsavík
Hafnarstétt 1
640 Húsavík
s: 414-2800
info@hvalasafn.is
kt: 460105-3740
VSK: 86491
Almennt
Öll samskipti um bókanir og þjónustu sem veitt er af Hvalasafninu á Húsavík, þar með talið breytingar og afbókanir skulu berast skriflega í gegn um tölvupóst á info@hvalasafn.is.
Bókanir
Miðar í safnið eru fáanlegir í afgreiðslu safnsins á opnunartíma. Ekki er þörf á að kaupa miða fyrir heimsókn. Við mælum með því að hópar sem telja fleiri en 15 manns bóki heimsókn í safnið með fyrirvara.
Leiðsögn um safnið er bókuð fyrirfram í gegn um netfang með 48 klst. fyrirvara.
Hægt er að kaupa miða í safnið á heimasíðu safnsins allan sólahringinn. Þegar þú bókar í gegn um heimasíðuna færðu senda staðfestingu og bókunarnúmer með tölvupósti ásamt dagsetningu heimsóknar. Ef þú getur ekki heimsótt safnið á þeirri dagsetningu sem bókað var er hægt að nýta miðann á annari dagsetningu.
Bókanir í gegn um email sendist á info@hvalasafn.is. Staðfesting á bókun verður send til baka á opnunartíma safnsins.
Heimsókn má bóka í síma 414 2800 á opnunartíma.
Afbókanir
Allar afbókanir verða að vera skriflegar og sendar á netfangið info@hvalasafn.is fyrir bókaða dagsetningu heimsóknar. Hvalasafnið á Húsavík tekur ekki gjald fyrir afbókanir sem gerðar eru fyrir valda dagsetningu heimsóknar.
Verð og virðisaukaskattur
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Ekki er greiddur virðisaukaskattur af miðakaupum í safnið.
Öryggi og persónuvernd
Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Allar kortafærslur fara í gegn um öruggann þjónustuvef Borgunar
(http://www.borgun.is). SSL felur kortaupplýsingar, nafn, heimilisfang og símanúmar áður en færslan fer í gegn um internetið.
Aðgengi
Inngangur safnsins, minjagripaverslun og fyrsta hæð er aðgengilegar í hjólastól. Önnur hæðin er ekki aðgengileg í hjólastól þar sem ekki er möguleiki á að koma fyrir lyftu í húsinu.
Ábyrgð
Hvalasafnið ber enga ábyrgð á eigum safngesta/miðahafa.
Lög um varnarþing
Um þjónustuviðskipti gilda skilmálar sem skilgreindir eru í lögum um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og lög um þjónustukaup nr. 42/2000. Varnarþing Hvalasafnsins er á Húsavík.
Ábendingar og kvartanir
Allar ábendingar um upplifun þína af Hvalasafninu á Húsavík eru vel þegnar. Ef þú vilt koma kvörtun til skila vinsamlegast sendu okkur upplýsingar sem fyrst á info@hvalasafn.is.