Á þriðjudaginn 10. mars sást til fyrstu steypireyðar ársins í hvalaskoðunarferð hjá Norðursiglingu á Skjálfanda. Þetta eru afar ánægjuleg tíðindi, enda er steypireyður (Balaenoptera musculus) bæði sjaldséð við Íslandsstrendur og stærsta dýr jarðar.
Steypireyðar sjást mun sjaldnar en aðrar stórhvalategundir á svæðinu og telst hver sýn því einstök upplifun, bæði fyrir gesti og leiðsögumenn. Að sjá þessa risavöxnu en um leið viðkvæmu tegund minna okkur á ríkidæmi hafsins við Ísland, en jafnframt á þá ábyrgð sem fylgir verndun þess.