Hnúfubak rak á land í Eyjafirði

Fyrir nokkrum dögum rak hnúfubak á land í Eyjafirði. Starfsmenn Hvalasafnsins á Húsavík fóru í vettvangsferð til að skoða dýrið, sem liggur nú neðan við bæinn Áshól, rétt sunnan við Grenivík.

Við heimsókn sína hittu starfsmenn safnsins Önnu Báru Bergvinsdóttur, bónda á Áshóli og rekstraraðila gistiheimilis á staðnum. Hún sagði að fyrst hefði hún séð hvalhræið fast á grynningum nokkuð langt frá landi, en hann hafi  svo losnað á háflóði og rekið nær. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Anna Bára verður vitni að hvalreka á þessum slóðum – á síðasta ári þurfti hún að nota dráttarvél til að ýta hvalhræi sem rak á land á næsta bæ aftur á flot til að losna við ólyktina sem fylgir slíkum reka.

Hnúfubakurinn reyndist vera 10 metra langt kvendýr. Með aðstoð samstarfsaðila okkar hjá hvalarannsóknarsamtökunum Whale Wise tókst að bera kennsl á einstaklinginn. Hver hnúfubakur hefur einstakt mynstur af hvítum og svörtum skellum neðan á sporðblöðkunni, sem gerir vísindamönnum kleift að bera kennsl á dýrin og fylgjast með ferðum þeirra.

Hnúfubakur er ein algengasta hvalategundin sem sést í hvalaskoðunarferðum við Ísland. Þar sem þeir lyfta sporðblöðkunni oft hátt upp úr sjónum áður en þeir kafa er tiltölulega auðvelt að safna ljósmyndum í gagnabanka fyrir rannsóknir.

Þessi einstaklingur bar einkennismerkið HW-MN0104313 á vefsíðunni Happywhale og sást fyrst í Eyjafirði fyrr á þessu ári.
Samkvæmt hvalarannsakandanum og skipstjóranum Babsi Neubarth sást þessi hvalur á lífi fyrir einungis nokkrum dögum.

Nánari upplýsingar um hvalinn má finna hér: happywhale.com/individual/142095

Dánarorsök er ókunn eins og er, en engir sjáanlegir áverkar fundust á dýrinu. Hafrannsóknarstofnun hefur verið látin vita og líklegt er að starfsmenn Rannsóknarstöðvar Háskóla Íslands á Húsavík fari á næstu dögum til að taka sýni og mælingar.

Facebook
Twitter
LinkedIn

More to explorer

Marianne Sivertsen Næss Sjávarútvegsráðherra Noregs

Noregur hækkar hvalveiðikvótann fyrir árið 2026

Sjávarútvegsráðherra Noregs, Marianne Sivertsen Næss Norski sjávarútvegsráðherrann hefur tilkynnt að hrefnuveiðikvóti fyrir árið 2026 verði hækkaður um 235 dýr frá fyrra ári

Lokað er fyrir athugasemdir.