
Sjávarútvegsráðherra Noregs, Marianne Sivertsen Næss
Norski sjávarútvegsráðherrann hefur tilkynnt að hrefnuveiðikvóti fyrir árið 2026 verði hækkaður um 235 dýr frá fyrra ári og verði því alls 1.641 hrefna.
Aukning kvótans er skýrð með því að ónýttur kvóti frá fyrri árum hafi verið fluttur á milli ára, þrátt fyrir að nýting kvótans hafi verið lítil undanfarin ár.
Árið 2025 tóku 10 hrefnuveiðiskip þátt í veiðunum í Noregi og veiddust þá 429 dýr af 1.406 leyfilegum hrefnum, sem jafngildir um 30,5% nýtingu á aflakvótanum.
Svipuð þróun var árið þar á undan. Þá var kvótinn hækkaður um 249 dýr, en árið 2024 veiddust aðeins 415 dýr af 1.157 leyfilegum hrefnum, eða um 35,8% af leyfðum afla.
Í rökstuðningi sínum fyrir áframhaldandi hvalveiðum vísar ráðherrann meðal annars til þess að hrefnur neyti mikils magns af fiski og hafi þannig áhrif á vistkerfi sjávar. Jafnframt er bent á að hvalveiðar stuðli að því að ná sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, meðal annars með því að auka neyslu sjávarfangs. Þessi rök hafa þó verið umdeild og ekki studd samhljóða niðurstöðum innan alþjóðlegs vísindasamfélags.


