Safnið opnar aftur eftir sex mánaða lokun

IMG_0396

Laugardaginn 12. mars sl. opnaði Hvalasafnið á Húsavík aftur dyrnar fyrir gestum og gangandi eftir sex mánaða lokun. Safnið hefur gengið í gegnum miklar breytingar síðustu sex mánuði. Steypireyðin sem rak á land við jörðina Ásbúðir á Skaga árið 2010 er komin upp til sýningar og var gestum boðið að skoða nýju sýninguna sem vakti mikla lukku þeirra 300 gesta sem áætlað er að hafi lagt leið sína inn á safnið þann dag. Gestum var boðið upp á veglagar veitingar í tilefni enduropnunar safnsins þar sem hvalatertan sló í gegn. Þar sem ekki eru til margar beinagrindur af steypireyði í heiminum er þetta einstakur fengur fyrir safnið að vera með slíka grind til sýningar og við vonum að sem flestir sjái sér fært að koma og skoða nýju sýninguna.  Það er opið á safninu frá klukkan 9-14 alla virka daga og einnig verður frítt inn á safnið dagana 14-18 mars.

Með fréttinni fylgja myndir sem Egill Ingibergsson sviðshönnuður tók af sýningunni. Smellið á myndirnar til að stækka þær

Steypireyðin

Facebook
Twitter
LinkedIn

More to explorer

Kvikmyndahátíð í Hvalasafninu

Dagana 18. og 19. ágúst næstkomandi verður kvikmyndahátíðin Ocean Films Húsavík haldin hátíðleg í Hvalasafninu. Hátíðin sem er samstarfsverkefni Hvalasafnsins og sjávarverndunarsamtakanna

white beaked dolphin

Hnýðingur í Hvalasafnið

Hvalasafninu á Húsavík barst heldur betur dýrgripur nú á dögunum þegar að hnýðingur (white-beaked dolphin) bættist í hóp beinagrinda safnsins. Þetta er

Litið yfir árið 2021

Aðalfundur Hvalasafnsins fór fram í síðustu viku þar sem ársreikningur 2021 var lagður fram til samþykktar og farið yfir starfsemi safnsins á

Lokað er fyrir athugasemdir.