Steypireyðarsýning Líffræðisýning Hvalveiðisýning Listasýning 2018 Hvalagangur

Steypireyðarsýning

Beinagrindin á sýningunni er af 25 metra langri steypireyð sem rak á land á Skaga síðsumars árið 2010. Grindin liggur á bakinu líkt og tíðkast þegar hvalhræ reka á land á náttúrulegan hátt.
Myndaröð inni í sýningarrýminu sýnir ferlið við að draga hræið á land, hreinsun beinanna í hvalstöðinni í Hvalfirði og uppsetningu grindarinnar í Hvalasafninu á Húsavík.

Líffræðisýning

Líffræðisýning safnsins gefur greinargóðar upplýsingar um þróun hvala, þroska, mökun og ætisleit.

Hvalveiðisýning

Í maí 2017 opnar ný og uppfærð hvalnýtingarsýning sem segir sögu hvalveiða við Ísland sem og sögu hvalaskoðunar.

Listasýning 2018

Sumarið 2018 opnaði listasýning Renata Ortega í safninu og ber hún heitið Ocean & the whales

Þema listasýninga á vegum Hvalasafnsins eru tenging við hvali og hafið. Nánari upplýsingar og umsóknir berist til heidar@hvalasafn.is

Sýningin mun standa út árið 2019.

Hvalagangur

Á Hvalasafninu má finna 11 beinagrindur af hvölum sem allir hafa dáið náttúrulegum dauðdagan, fyrir utan náhvalsgrind, en hún var gjöf frá Grænlenskum veiðimönnum.