Starfsmaður Hvalasafnsins hlýtur alþjóðlegan rannsóknarstyrk

Garðar Þröstur Einarsson, ábyrgðarmaður safnfræðslu við Hvalasafnið á Húsavík, hlaut nýverið styrk frá Scandinavia–Japan Sasakawa Foundation.
Styrkir sjóðsins eru veittir til að efla tengsl Norðurlanda og Japans, einkum á sviði menntunar, rannsókna og menningar.

Garðar hlaut styrkinn fyrir rannsóknarverkefni sitt á búrhvalsbeinagrind sem er til sýnis í Port of Nagoya Public Aquarium í Japan.
Markmið verkefnisins er að rannsaka ástand, sögu og framsetningu beinagrindarinnar, sem upprunnin er frá Íslandi, og bera saman meðferð og miðlun hvalaminja í Japan og á Íslandi.

Garðar var viðstaddur úthlutunarathöfn sjóðsins sem fram fór í Eddu við Háskóla Íslands þann 15. apríl, þar sem styrkþegum var fagnað í viðurvist sendiherra Japans á Íslandi, Hr. Keizo Takewaka.

Ferðin til Japan er fyrirhuguð síðar á árinu, þar sem Garðar mun dvelja í Nagoya og vinna að rannsókninni í samstarfi við japanska sérfræðinga.

Hópmynd

 

Garðar Þröstur tekur við þjóðarblómi Japans

 

Guðrún Nordal, formaður íslenskudeildar Scandinavia-Japan Sasakawa sjóðsins

 

Styrkþegar hlýða á ræðuhöld

 

Hr. Keizo Takewaka, sendiherra Japans  á Íslandi

 

Kristín Ingvarsdóttir og Garðar Þröstur hlutu bæði styrki

 

Gestum skenkt í glös