Hvalasafnið á Húsavík tók þátt í Alþjóðlega safnadeginum 18. Maí með því að bjóða gestum upp á fríar leiðsagnir um safnið á fjórum tungumálum. Dagurinn tókst afar vel og var ánægjulegt að sjá hve margir lögðu leið sína á safnið, þar á meðal fjöldi heimamanna af erlendum uppruna. Sjá myndasyrpu neðst í frétt.
Leiðsagnirnar gáfu gestum tækifæri til að kynnast safninu betur, fræðast um hvali, hafið og mikilvægi hvalarannsókna, auk þess að upplifa safnið á eigin tungumáli eða tungumáli sem þeim er tamt. Með framtakinu vildi Hvalasafnið leggja sitt af mörkum til að gera safnið aðgengilegra fyrir fjölbreytt samfélag Húsavíkur og nágrennis.
Maria Glarou, doktorsnema við Háskóla Íslands á sviði líf- og umhverfisvísinda, með áherslu á hvali, sjávarlíffræði og tengd rannsóknarsvið tók að sér leiðsögn á grísku, en Grikkjum hefur einmitt farið ört fjölgandi á Húsavík síðustu árin.
Starfsmenn Hvalasafnsins, Maria Domasik og Garðar Þröstur Einarsson sáu um leiðsögn á pólsku annarsvegar og ensku og íslensku hinsvegar.
Hvalasafnið vill koma á framfæri kærum þökkum til allra sem mættu á safnið í tilefni dagsins og tóku þátt í leiðsögnunum. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá fólk úr ólíkum hópum samfélagsins koma saman, fræðast um hvalina og deila upplifun sinni á safninu.
Alþjóðlegi safnadagurinn minnir okkur á mikilvægt hlutverk safna sem vettvangs fræðslu, menningar, samtals og tengsla milli fólks. Hvalasafnið á Húsavík hlakkar til að halda áfram að taka á móti gestum, miðla þekkingu um hvali og hafið og skapa rými þar sem öll eru velkomin.