Nemendur í 5. bekk Borgarhólsskóla tóku nýverið þátt í hvalaskoðunarferð í Skjálfandaflóa sem hluta af verkefninu Hvalaskólanum hjá Hvalasafninu á Húsavík.
Hvalaskólinn hefur um árabil tengt saman fræðslu, vettvangsnám og rannsóknir á hvölum og lífríki hafsins, þar sem nemendur fá tækifæri til að upplifa náttúruna af eigin raun.
Siglt var á eikarbátnum Garðari frá Norðursiglingu í virkilega góðu veðri þar sem sjórinn var sléttur og aðstæður til hvalaskoðunar eins og best verður á kosið. Christian Schmidt var leiðsögumaður ferðarinnar, Alli Bjarna skipstjóri, Filipa Rodrigues bátsmaður og Jordi vélstjóri. Starfsmaður Hvalasafnsins, Garðar Þröstur Einarsson, var með í för og sá um leiðsögn á íslensku fyrir nemendur.
Ferðin reyndist einstaklega vel heppnuð því nemendurnir sáu þrjá hnúfubaka sem tókst að bera kennsl á með aðstoð Happywhale-gagnagrunnsins og rannsakenda frá Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Húsavík sem voru einnig með um borð. Rannsakendurnir gátu strax borið kennsl á hnúfubakinn Polini og fengu nemendur þannig innsýn í hvernig ljósmyndagreining og rannsóknir á hvölum fara fram í raunverulegum aðstæðum.
Með því að smella á hlekkina hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um hnúfubakana sem sáust í ferðinni:
Hvalaskoðunarferðir eru mikilvægur hluti af Hvalaskólanum þar sem nemendur fá að tengja saman fræðslu úr kennslustofunni við raunverulegar upplifanir úti á sjó. Markmið verkefnisins er meðal annars að auka skilning nemenda á lífríki hafsins, rannsóknum á hvölum og mikilvægi verndunar hafsins.
Við þökkum Norðursiglingu kærlega fyrir samstarfið og öllum þeim sem komu að ferðinni fyrir frábæran dag á hvalaslóðum í Skjálfandaflóa.