Listasmiðja með Marsibil Sól

Ég ólst upp með hvali

Hvalasafnið í samstarfi við Stúdíó Róló standa að listasmiðju fyrir börn á aldrinum 8-12 ára sem verða haldnar í Hvalasafninu dagana 19.-22. febrúar. 

Smiðjurnar fara fram í þremur skipum dagana 19.–22. febrúar, þar sem þátttakendur fá að kanna tengsl sín við hafið, hvalaheiminn og eigin minningar í gegnum fjölbreyttar listarlegar aðferðir. 

Marsibil Sól, vöruhönnuður, hefur haldið fjölbreyttar listasmiðjur víða um land þar sem hún vinnur markvisst með íslenska arfleið og þjóðmenningu. Nú kemur hún til Húsavíkur, í Hvalasafnið, með smiðjur sem fjalla um það hvernig er að lifa í sífelldri nálægð við hvalinn — og vekja þannig upp athyglisverðar spurningar um samband manns og náttúru.

Skipulag smiðju

Hópur 1

Fimmtudagur 19. febrúar.  14:30-16:00

Laugardagur 21. febrúar –  10:00-11:30

Sunnudagur 22. febrúar – báðir hópar

10:00-12:00  Uppsetning sýningar frá námskeiði

Hópur 2

Föstudagur 20. febrúar – 14:30-16:00

Laugardagur 21. febrúar – 13:00-14:30

22. febrúar – báðir hópar

10:00-12:00  Uppsetning sýningar frá námskeiði

Skráning fer fram í tölvupósti, takið fram nafn á þáttakanda og ósk um hóp 1. eða 2. hjá Garðari Þresti, gardar@hvalasafn.is

12 pláss í boði í hvorum hóp og þáttaka er gjaldfrjáls.  

Dagskrá er birt með fyrurvara um breytingar

Námskeiðið er ný viðbót við dagskrá Hvalaskólans og miðar að því að auka framboð fræðandi viðburða fyrir börn og ungmenni á svæðinu. Verkefnið hlaut styrk úr Safnasjóði 2025.