Sjaldséður Hvítur Hvalur – Mjaldur á Austfjörðum

Sjaldgæf sjón við Reyðarfjörð

Í gær bárust Hvalasafninu á Húsavík áhugaverðar upplýsingar um mjaldur (Delphinapterus leucas) sem sást á Austurlandi. Um er að ræða afar sjaldgæfan gest við Íslandsstrendur, en mjaldrar eru heimskautahvalir sem lifa aðallega á norðlægum slóðum í Norður-Íshafi.

Tinna Hrönn Smáradóttir á Fáskrúðsfirði varð vör við dýrið þann 19. maí þegar hún ók um Reyðarfjörð. Hún sá hvítt dýr glampa í sjónum og náði að stöðva bílinn og náði af því myndskeiði sem sjá má hér að neðan. Samkvæmt lýsingu hennar synti dýrið innarlega í firðinum og sást vel frá landi. Um klukkutíma fyrr sama dag hafði hún einnig tekið eftir dökkum hval á svipuðum slóðum, sem líklega var önnur tegund.

Myndskeiðið sem Tinna tók sýna greinilega mjaldur sem einkennist af hvítum lit, ávölu enni og skorti á bakugga – allt einkenni sem passa vel við mjaldur. Að sögn hennar vakti sjónin auðvitað athygli, en hún gerði sér þó ekki grein fyrir því á þeim tíma hversu sjaldséð tegundin væri.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem mjaldur sést við Ísland, en slíkar athuganir eru sjaldgæfar. Þekkt dæmi er frá árinu 1965 þegar mjaldur veiddist í net við Kópasker og varð að sýningargripi hjá Hjálparsveit Skáta í Hafnarfirði, og var sú sýning vísirinn að því sem seinna mundi verða að Sædýrasafninu í Hafnarfirði.
Síðan þá hafa aðeins örfáar áreiðanlegar athuganir borist úr íslenskri lögsögu, og eftir því sem að Hvalasafnið kemst næst þá sást síðast til mjaldurs á Ausfjröðum árið 2008, þegar mjaldur sást við Njarðvík í Borgarfirði Eystri.

Fáskrúðsfjörður og Reyðarfjörður eru tengdir með Fáskrúðsfjarðargöngum og liggja í hjarta Austfjarða, svæðis sem er þekkt fyrir fjölbreytt sjávarlíf og reglulegar heimsóknir hvala.

Hvalasafnið á Húsavík þakkar Tinnu kærlega fyrir að deila athuguninni og myndskeiðunum. Slíkar tilkynningar frá almenningi eru afar mikilvægar til að fylgjast með útbreiðslu og ferðum sjaldgæfra hvalategunda við Ísland.

Ef þú sérð óvenjulega hvali eða önnur sjávarspendýr við Íslandsstrendur hvetjum við þig til að hafa samband við Hvalasafnið og senda myndir eða myndskeið ásamt upplýsingum um staðsetningu og tíma athugunar.

Facebook
Twitter
LinkedIn

More to explorer

Lokað er fyrir athugasemdir.