Gott og viðburðaríkt ár að baki hjá Hvalasafninu á Húsavík

Árið 2025 var gott og viðburðaríkt hjá Hvalasafninu á Húsavík. Safnið tók á móti rúmlega 42.000 gestum og styrkti enn frekar stöðu sína sem mikilvægur viðkomustaður í menningar- og ferðaþjónustu á Norðurlandi, með sterka tengingu við hvalaskoðun og nærsamfélagið.

Tristan Visser stóð fyrir mögnuðum viðburði í safninu í júní.

Fjölbreytt starfsemi einkenndi árið, þar sem áhersla var lögð á sýningar, fræðslu og miðlun. Meðal verkefna ársins voru sýningar og útgáfuverkefni á borð við The World Around Whales og Sjávarblámi, auk fræðsluverkefna og viðburða fyrir ólíka aldurshópa. Safnið tók einnig þátt í innlendu og alþjóðlegu samstarfi, meðal annars í tengslum við kvikmyndahátíðina Seas and Trees í samstarfi við Ocean Missions og viðburði á sviði umhverfis- og hafmála.

Frá sýningunni Sjávarblámi / Seas´ blue yonde
Bókin er útgefin af Hvalasafninu. Hún er vandlega unnin og fagurlega hönnuð, og markar mikilvægt framlag til bókmennta um hvali, vísindi og menningu.

Rannsóknir voru áfram mikilvægur hluti af starfseminni. Starfsfólk safnsins tók þátt í söfnun sýna af strönduðum hvölum í samstarfi við Hafrannsóknastofnun og Rannsóknarsetur Háskóla Íslands og lagði þannig sitt af mörkum til aukinnar þekkingar á líffræði og ástandi stórhvela.

Rekstur safnsins gekk vel á árinu. Færri framkvæmdir en undanfarin ár skiluðu auknum rekstrarafgangi, samhliða nauðsynlegum endurbótum og fjárfestingu í aðstöðu sem styrkir faglega starfsemi safnsins til framtíðar. Undir lok árs hlutu verkefni safnsins jafnframt styrki til áframhaldandi uppbyggingar á árinu 2026.

Um þessar mundir verða einnig tímamót í starfsemi safnsins. Eva Björk Káradóttir lætur af störfum sem safnstjóri um mánaðamótin, eftir að hafa gegnt starfinu í átta ár. Á þeim tíma hefur hún leitt uppbyggingu og þróun safnsins af miklum metnaði og lagt ríka áherslu á fagmennsku, samstarf og framtíðarsýn.

Stjórn Hvalasafnsins þakkar Evu Björk Káradóttur kærlega fyrir vel unnin störf, farsæla forystu og ánægjulegt samstarf og óskar henni velfarnaðar í komandi verkefnum.

Jafnframt býður stjórnin nýjan safnstjóra, Arngrím Arnarson, hjartanlega velkominn til starfa og hlakkar til áframhaldandi þróunar og spennandi tíma hjá Hvalasafninu undir hans stjórn.

Stjórn og safnstjórar Hvalasafnsins
Stjórn Hvalasafnsins ásamt safnstjórum. Hjálmar Bogi Hafliðason, Sigríður Örvardóttir, Þorkell Lindberg Þórarinsson, Arngrímur Arnarson, Eva Björk Káradóttir og Daníel Annisius
Facebook
Twitter
LinkedIn

More to explorer

Marianne Sivertsen Næss Sjávarútvegsráðherra Noregs

Noregur hækkar hvalveiðikvótann fyrir árið 2026

Sjávarútvegsráðherra Noregs, Marianne Sivertsen Næss Norski sjávarútvegsráðherrann hefur tilkynnt að hrefnuveiðikvóti fyrir árið 2026 verði hækkaður um 235 dýr frá fyrra ári

Lokað er fyrir athugasemdir.