Hvalasafnið á Húsavík tekur þátt í Alþjóðlega safnadeginum 2026, sem haldinn er 18. maí ár hvert að frumkvæði Alþjóðaráðs safna, ICOM. Dagurinn er tileinkaður mikilvægu hlutverki safna í samfélaginu, ekki síst sem vettvangi fræðslu, menningarsamskipta, skilnings og samtals milli fólks.
Þema Alþjóðlega safnadagsins 2026 er „Museums Uniting a Divided World“, eða „Söfn sameina sundraðan heim“. Með þemanu er lögð áhersla á hvernig söfn geta byggt brýr milli ólíkra samfélaga, menningarheima og sjónarmiða og skapað rými fyrir fjölbreyttar raddir og sameiginlega upplifun.
Af þessu tilefni býður Hvalasafnið gestum upp á fríar leiðsagnir um safnið síðdegis þann 18. maí. Leiðsagnirnar verða á ensku, pólsku, grísku og íslensku og eru öllum opnar.
Dagskrá leiðsagna
- Kl. 16:00 – Enska
- Kl. 16:30 – Pólska
- Kl. 17:00 – Gríska
- Kl. 17:30 – Íslenska
Hvalasafnið hvetur íbúa og gesti til að koma í heimsókn, fræðast um hvali og hafið og taka þátt í alþjóðlegum degi þar sem söfn um allan heim minna á mikilvægi menningar, þekkingar og samtals.
Aðgangur að leiðsögnunum er ókeypis.
Allt að 30 manns í hverja leiðsögn. Fyrstir koma, fyrstir fá.
Nánari upplýsingar um Alþjóðlega safnadaginn má finna á vef ICOM:
https://icom.museum/en/international-museum-day-2/



