Hnýðingur í Hvalasafnið

Hvalasafninu á Húsavík barst heldur betur dýrgripur nú á dögunum þegar að hnýðingur (white-beaked dolphin) bættist í hóp beinagrinda safnsins. Þetta er tólfta beinagrindin sem mun heiðra Hvalasafnið með nærveru sinni og sú fyrsta sem bætist í hópinn frá því að steypireyðurinn kom árið 2015. Jafnframt er þetta síðasta hvalategundin sem safninu vantaði af þeim sem teljast algengastar í Skjálfandaflóa. Það var Garðar Þröstur Einarsson hvalfræðingur sem lagði land undir fót til þess að ná í hnýðinginn á strandstað sinn sem var á bænum Guðlaugsvík í Hrútafirði. Garðar Þröstur flensaði hnýðinginn á staðnum og ók svo með hann heim á leið þar sem beinin eru komin í hefðbundið rotnunarferli. Áætlað er að beinin verði klár til samsetningar eftir um það bil eitt ár. Hvalasafnið vill koma á framfæri þökkum til ábúenda í Guðlaugsvík fyrir gjöfina og liðlegheit á strandstað.

Hnýðingurinn strandaði í Guðlaugsvík í Hrútafirði
Facebook
Twitter
LinkedIn

More to explorer

Mjaldur sást frá landi við Tjörnes

Sjaldgæfur heimskautahvalur sást við Tjörnes þann 20. ágúst Mjaldur (Delphinapterus leucas) sást frá landi við Tjörnes þann 20. ágúst. Hvalurinn sást fyrst

Hvalveiðar hefjast á ný

Tvær langreyðar voru veiddar aðfaranótt 22. júní og marka þær upphaf hvalveiðivertíðar sumarsins 2026. Þetta eru fyrstu hvalirnir sem veiddir eru við

Lokað er fyrir athugasemdir.